Apple AirPods
26.990 kr.
Stutt lýsing
Apple AirPods
AirPods munu örugglega breyta því hvernig þú notar heyrnartól !
Einfaldleiki og tækni sameinast á einstakan hátt og útkoman er töfrum líkust.
Þegar þú tekur þau úr hleðsluboxinu kveikja þau sjálfkrafa á sér og tengjast
þínum iPhone, Apple Watch, iPad, eða Mac.(*1) án fyrirhafnar.
Þú stýrir aðgerðum með því að snerta eða tappa létt á heyrnartólin meðan
þú ert með þau í eyrunum. Þú getur líka notað raddstýringu, t.d. til að
hækka og lækka hljóðstyrk, skipta um lag, hringja o.fl.
Apple W1 örgjörvinn og innbyggðir skynjarar nema hvort annað eða
bæði tækin séu í notkun. Þannig stýra þeir orkunýtingu á sem bestan hátt
og sjá til þess að allt hljóð heyrist sem best.
Hljóðnemarnir eru líka með búnað sem tryggir að þeir nái röddinni þinni
sem best, en útiloki sem mest af umhverfishljóðum.
Allt er þetta gert til að gera upplifun þína sem þægilegasta
og ekki hvað síst til að færa þér fínustu hljómgæði.
- Lýsing
- Frekari upplýsingar
Lýsing
Apple AirPods þráðlaus heyrnartól
Þyngd: AirPods (hvor): 4 g Hleðsluboxið: 38 g
Mál:
AirPods (hvor): 16.5 x 18.0 x 40.5 mm
Hleðsluboxið: 44.3 x 21.3 x 53.5 mm
Tengingar:
AirPods: Bluetooth
Hleðsluboxið: Lightning tengi
AirPods skynjarar (í sitthvorum):
Tveir “beam-forming” hljóðnemar
Tveir ljósnemar
Hreyfi- og hröðunarskynjari
Talskynjari
Orkunotkun og rafhlaða:
AirPods með hleðsluboxi: Rúmlega 24 klst. í hlustun,(3) allt að 11 klst. taltími (6)
AirPods (fullhlaðin): Allt að 5 klst. í hlustun,(2) allt að 2 klst. taltími (5)
15 mínútur í hleðsluboxinu gefa 3 klst. í hlustun (4) eða um 1 klst. taltíma (7)
(*1) Með tækjum sem eru skráð á þinn iCloud reikning. Tölvan þarf macOS Sierra, iPhone þarf iOS 10 og úrið watchOS 3.
(2), (3), (4), (5), (6) og (7) Samkvæmt prófunum sem Apple gerðu í ágúst 2016.
Frekari upplýsingar
Brand |
---|