Koma í hús strax eftir helgi og pantanir afgreiddar samdægurs.
iPad Pro 12.9′ – Ný M1 útgáfa!
Kannski er næsta tölvan þín ekki tölva, heldur iPad.
Ný frábær myndavél með víðlinsu, LiDAR skanni, WiFi 6 og A12Z Bionic örgjörvi sem slær út flestar PC fartölvur á markaðinum hvað hraða varðar. Þráðlaus segulhleðsla á hlið tækisins fyrir Apple Pencil 2.
Stuðningur við nýtt Magic Keyboard, sem er allt í senn; vandað lyklaborð með snertifleti, hlíf og flottur standur.
Helstu eiginleikar:
12.9′ Liquid Retina XDR skjár (2732 x 2048 pixlar)
ProMotion – Wide color – Minni glampi (1,8%) – True Tone
Apple M1 örgjörvi 8-core CPU og 8-Core GPU með Neural Engine
12MP Smart HDR linsa með /1.8 ljósopi og 4K HD upptöku (60fps)
10MP Smart HDR 125° víðlinsa með /2.4 ljósopi og 4K HD upptöku (60fps)
12MP TrueDepth myndavél einnig með Portrait eiginleika
Face ID
Innbyggt þráðlaust netkort (802.11ax WiFi 6)
Allt að 10 tíma rafhlöðuending
Photos, Camera, Messages, Notes, Mail, Music, Safari og fleiri smáforrit fylgja
Milljón önnur á App Store, mörg ókeypis, t.d. Pages, Numbers og Keynote
iPadOS 14 stýrikerfið, inniheldur t.d. iCloud Drive, Family Sharing
Fjórir hátalarar, þrír mjög góðir hljóðnemar.
20W USB-C hleðslutæki.
BOSE NC 700 Headphones – þráðlaus noise cancelling heyrnartól
Flaggskipið frá Bose sem lengi hefur verið leiðandi í þessari tækni
Öflug heyrnartól sem veita þér hámarks hvíld og einstök hljómgæði.
Heimsklassa noise cancelation sem eyðir mest öllum umhverfishávaða og gera þér kleift að njóta tónlistarinnar án truflunnar.
Þráðlaus bluetooth og NFC sem einfaldar tengingu við síma eða önnur bluetooth tæki.
Rafhlöðuending 20 klst.
AirPods Max eru ný heyrnartól frá Apple.
Þau sameina nýja spennandi möguleika í hljómgæðum og einfaldleika hinna gríðarvinsælu AirPods.
Apple notast við nýja nálgun í hönnun höfuðpúðanna, til að ná sem bestri einangrun og fá sem besta hljóðupplifun.
Í AirPods Max sameinast Hi-Fi hljómgæði og einhver besta suðeyðing sem völ er á.
Í hvorum hátalara er H1 örgjörvinn, sem er sérhæfður í hljóðvinnslu. Hann reiknar út samspil fjölmargra atriða (utanaðkomandi hávaði, einangrun) og lætur allt hljóma hreint og tært. Bíóhljóð getur t.d. hljómað eins og það sé alltumlykjandi.
AirPods Max býður upp á sömu þægilegu og einföldu virknina í þráðlausum samskiptum, líkt og margir þekkja frá AirPods og AirPods Pro.
Nýjasta Apple TV er eitt sniðugasta smátækið á heimilið.
Styður 4K háskerpusjónvörp og býður upp á mögnuð myndgæði með High Dynamic Range.
A12 örgjörvi, Bluetooth 5.0 þráðlaus tækni, HDMI 2.1
Þú getur sleppt myndlyklinum og horft á sjónvarp í gegnum netið, t.d. með áskrift að netveitu, eða
ókeypis með RÚV appinu. Ótal önnur sjónvarpsforrit eins og YouTube eða fréttastöðvar.
Kemur með 64GB gagnageymslu og innbyggðu App Store þar sem þú getur náð í forrit og tölvuleiki beint í græjuna.
Siri fjarstýringin er með Bluetooth 4.0, hljóðnema, snertifleti, hreyfiskynjara og hleðslurafhlöðu. Hægt er að kaupa auka fjarstýringu til að fleiri geti spilað leiki í einu. Einnig fæst Remote Loop ólin sem kemur í veg fyrir að þú missir fjarstýringuna í gólfið.