- Lýsing
- Frekari upplýsingar
Lýsing
Lýsing
Viltu bæta þig í golfi? Viltu bæta daglega hreyfingu? Nennir þú ekki að vera með mörg tæki til að gera það? Þá er Approach X40 úrið fyrir þig! Það kemur með 40.000 forhlöðnum völlum og sameinar daglega hreyfingu, púlsmæli og viðvaranir frá snjallsíma svo að þú sért með allt á einum stað.
Púlsmælir í ólinni
Elevate púlsmælirinn í ólinni mælir púlsinn þinn allan sólarhringinn. Því þarft þú ekki lengur að setja strappa utan um bringuna á þér. Með því að nota púlsmælinn getur Approach X40 reiknað út brennslu og áætlað ákafann í æfingunum þínum.¹

Úr sem rokkar
Einungis Garmin býður uppá heilsuúr með GPS fyrir golfið og snjallsímatengingu – svo er úrið líka létt og þægilegt. Úrið er vatnshelt niður á 50m dýpi, er með endurhlaðanlegri lithium-ion rafhlöðu, úrið sýnir tíma og dagsetningu og hægt er að nota það sem vekjaraklukku – þú getur því notað það alla daga og aldrei verið seinn.
Byltir þínum leik
Approach X40 er sannur golffélagi. Hvar sem er og hvenær sem er veit hann hvar þú ert – og hvað það er langt í næstu holu. Í úrinu er næmur GPS móttakari sem sýnir þér öll þau gögn sem þú þarft til að slá fullur sjálfstrausts. Úrið sýnir þér einnig þrjár mismunandi vegalengdir á flötina, partinn sem er næst þér, miðjuna og endann – jafnvel þó þú sért í skjóli trjáa.

Sjálfvirkur högggreinir
Sjáðu útlit flatar
Í Approach X40 er Green View Display, sem sýnir þér útlit flatar hvar sem þú ert á vellinum. Þú getur fært flaggið til á flötinni til að fá sem nákvæmari vegalengd að holu.

Tilkynningar úr snjallsíma
Þú munt ekki missa af mikilvægu smáskilaboði, tölvupóst eða tilkynningu á golfvellinum, því öll snjallsímaskilaboð birtast á úrinu. Approach X40 er snjallúr sem tengist við símann þinn og sýnir þér öll skilaboð sem þar birtast. Með Bluetooth® tækninni getur þú lesið tölvupóst eða smáskilaboð á vellinum þótt síminn sé í pokanum.
Garmin Connect – Golf Umhverfið þitt



Garmin Connect er golf-app sem gefur þér góða greiningu eftir hvern hring. Þú hleður niður hringnum þínum og berð hann saman við þann fyrri; fylgist með framförum í leiknum þínum á hverjum einasta velli. Garmin Connect getur sett saman þinn kjör hring með því að sameina besta skorið þitt á hverri holu svo þú sjáir hvað þú getur orðið góður á hverjum velli.
Haltu utan um skorið í úrinu
Approach X40 heldur auðveldlega utan um skorið þitt í golfhringnum. Þegar þú klárar hringinn getur þú vistað, skoðað og notað Garmin ConnectTM Mobile appið til þess að deila skorinu þínu með vinum þínum á netinu.

Tengist TruSwing™ Skynjara frá Garmin
Þú getur tengt Approach X40 við Garmin TruSwing skynjara (seldur sér) og snjallsíma eða spjaldtölvu og séð í rauntíma og þrívídd sveiflugreiningu á sjálfum þér. Ef þú notar Garmin Connect appið getur þú einnig greint sveifluhraða, tempó, sveifluna, staðsetningu kylfunnar og margt fleira.
Uppfærðu vellina ókeypis
Approach X40 kemur tilbúið til notkunar með rúmlega 40.000 forhlöðnum golfvöllum. Það er heldur ekkert mál að uppfæra vellina, með því að nota Garmin Express, þér að kostnaðarlausu. Uppfærslur og viðbætur koma á 3 mánaða fresti !
¹Activity tracking accuracy
²Hvernig boltinn liggur og boltasnerting getur haft áhrif á högggreiningu. Pútt eru ekki mæld. Sum högg, þá sérstaklega vippur inn á green, mælast stundum ekki.
³Þegar það er parað með samhæfum snjallsíma (e. compatible smartphone)
The Bluetooth® word mark and logos are owned by the Bluetooth SIG, Inc. and any use of such marks by Garmin is under license.
Frekari upplýsingar
Brand |
---|