Montana 700i býður upp á vega- og utanvegaleiðsögn og SOS eiginleika í gegnum inReach gervihnattasamskipti.
QWERTY lyklaborð gerir þér auðvelt fyrir að skrifa.
inReach gervihnattasamskipti og 24/7 SOS hnappur.
Innbyggt kort af Evrópu.
Högg- og hitaþolið upp að MIL-STD 810 staðli.
Hægt að sækja BirdsEye gervihnattamyndir í tækið.
Rafhlöðuending: allt að 18 klst í GPS.
HÆGT AÐ SENDA SKILABOÐ
Þú getur sent skilaboð til tengiliða, skrifað á samskiptamiðla eða átt samskipti við önnur inReach tæki (þarfnast áskriftar).
SOS HNAPPUR
Ef þú lendir í slysi þá getur þú ýtt á SOS hnappinn. Tækið hefur þá samband við GEOS hjálparmiðstöðina sem að hefur samband við viðbragðsaðila fyrir þína hönd (þarfnast áskriftar).
ALLTAF MEÐ SAMBAND
Þú þarft ekki lengur að stóla á að vera í símasambandi. Skilaboð, SOS og trökk fara í gegnum Iridium® gervihnattakerfið (þarfnast áskriftar).
INREACH VEÐUR
Hægt er að fá veðurspár frá inReach sendar beint í tækið svo þú vitir hvað er í vændum.
HARÐGERT
Þetta tæki er vatnsþolið (IPX 7) og uppfyllir kröfur Bandaríska hersins um högg- og hitaþol (MIL-STD 810). Tækið er með 5“ snertiskjá sem hægt er að vinna á í hönskum.
GÖTULEIÐSÖGN
Það er innbyggt kort í tækinu og tækið býður upp á vegaleiðsögn.
TOPOACTIVE EVRÓPUKORT
Það er innbyggt göngukort af Evrópu í tækinu með hæðarlínum.
GERVIHNATTAMYNDIR
Hægt er að sækja BirdsEye gervihnattamyndir beint í tækið.
ABC SKYNJARAR
Í tækinu er loftvog, hæðartölva og 3-ása rafeindakompás.
ACTIVE WEATHER
Hægt er að fá aðgang að Active Weather veðurspám í gegnum símasamband og Garmin Connect appið.
HÆGT AÐ NOTA MEÐ HUNDATÆKJUM
Þetta Montana tæki getur talað við samhæf Alpha tæki til að sýna staðsetningu hunda á korti.
INNBYGGÐ MYNDAVÉL
Þú getur smellt myndum af ferðalögum þínum með 8MP innbyggðri myndavél. Myndirnar tengjast sjálfkrafa GPS staðsetningunni þinni svo auðvelt sé að tengja saman mynd og stað (einungis í 750i útgáfunni).
MULTI-GNSS STUÐNINGUR
Tækið styður GPS, GLONASS og GALILEO gervihnetti og þ.a.l. nær tækið betra sambandi við erfiðar aðstæður.
TRÖKK
Þú getur séð staðsetninguna þína og deilt henni með vinum og vandamönnum. Þau geta fylgst með trakkinu þínu eða fengið senda núverandi staðsetningu í gegnum MapShare síðuna (þarfnast áskriftar).
EXPEDITION MODE
Hægt er að framlengja rafhlöðuendinguna á tækinu í heila viku með því að stilla það á Expedition Mode.
BETRI RAFHLÖÐUENDING
Innbyggð lithium-ion rafhlaða með allt að 18 klst rafhlöðuendingu í GPS.
FESTINGAR
Hægt að fá festingar fyrir Montana tækið fyrir bíla, fjórhjól, báta eða fleiri tæki (festingar seldar sér).
GPS auto navigator with built-in dash cam, advanced driver alerts such as Forward Collision Warning and 5.0-inch capacitive touch, pinch-to-zoom display
View live parking information, including pricing and availability trends for on-street public parking, as you approach your destination
Built-in dash cam with optional audio continuously records your drive and automatically saves files on impact; GPS records where and when events occurred