AirPods munu örugglega breyta því hvernig þú notar heyrnartól !
Einfaldleiki og tækni sameinast á einstakan hátt og útkoman er töfrum líkust.
Þegar þú tekur þau úr hleðsluboxinu kveikja þau sjálfkrafa á sér og tengjast
þínum iPhone, Apple Watch, iPad, eða Mac.(*1) án fyrirhafnar.
Þú stýrir aðgerðum með því að snerta eða tappa létt á heyrnartólin meðan
þú ert með þau í eyrunum. Þú getur líka notað raddstýringu, t.d. til að
hækka og lækka hljóðstyrk, skipta um lag, hringja o.fl.
Apple W1 örgjörvinn og innbyggðir skynjarar nema hvort annað eða
bæði tækin séu í notkun. Þannig stýra þeir orkunýtingu á sem bestan hátt
og sjá til þess að allt hljóð heyrist sem best.
Hljóðnemarnir eru líka með búnað sem tryggir að þeir nái röddinni þinni
sem best, en útiloki sem mest af umhverfishljóðum.
Allt er þetta gert til að gera upplifun þína sem þægilegasta
og ekki hvað síst til að færa þér fínustu hljómgæði.