VENU SQ Án tónlistar – Fjólublátt

39.990 kr.

Vörunúmer: 010-02427-12 Flokkar: , , , ,
  • Lýsing

Lýsing

NÚNA ER RÉTTI TÍMINN TIL HREYFINGAR

Venu Sq er með björtum og fallegum skjá og hægt er að fá úrið með og án tónlistareiginleika. GPS er í úrinu og það fylgist einnig með daglegri heilsu og hreyfingu.

Innbyggð heilsuskráning.

Hægt er að hlaða tónlist í úrið (bara í music útgáfu).

Hlaup, hjól, göngur, golf – fleiri en 20 íþróttaprógrömm sem hægt er að velja úr.

Skipuleggur æfinguna fyrir þig – yoga, styrktaræfingar, cardio og pílates.

Garmin Pay™ snertilausar greiðslur.

Bjartur og góður skjár og allt að 6 daga rafhlöðuending.

FLOTT Á HENDI

Hannað til að fyrir daglega notkun og er flott á hendi. Bjartur og góður skjár sem auðvelt er að sjá á og alltaf hægt er að hafa kveikt á.

HANNAÐ MEÐ ÞIG Í HUGA

Corning® Gorilla® Glass 3 sér um að vernda skjáinn og sílíkon ólin sér til þess að það sé þægilegt að ganga með það.

BODY BATTERY™ ORKUMÆLING

Fylgstu með orkustöðu líkamans til að sjá hvort þú sért með næga líkamsorku til að fara á æfingu eða hvort þú ættir að taka hvíld.

SÚREFNISMETTUN

Fyrir hæðaraðlögun og svefnskráningu. Súrefnismettunarmælirinn (Pulse Ox) notar lítinn ljósgeisla til að mæla hversu vel líkaminn er að taka upp súrefni4.

STRESS SKRÁNING

Getur sagt þér hvort að þú sért að eiga rólegan, jafnan eða stressaðan dag. Áminning um slökun minnir þig á að gera stuttar og slakandi öndunaræfingar.

SKRÁIR TÍÐARHRINGINN

Hjálpar þér að fylgjast með hvar þú ert í hringnum, skrá niður líkamleg og andleg einkenni og kennir þér hvernig þjálfun og næring hentar best fyrir hvern hluta tíðahringsins. Fáðu tilkynningar og meira í úrið með því að hlaða niður Connect IQ appinu

DRYKKJARSKRÁNING

Hjálpar þér að halda utanum hversu mikið vatn þú ert að drekka og fylgjast með muninum á milli daga.

FYLGIST MEÐ ÖNDUN

Fylgist með öndun yfir daginn, á meðan þú sefur og á æfingum eins og yoga.

SVEFNSKRÁNING

Skiptir svefninum þínum niður í lausan, djúpan og REM svefn og gefur þér góða heildar mynd af svefni næturinnar. Skráir einnig upplýsingar um súrefnismettun og öndun.

INNBYGGÐUR PÚLSMÆLIR

Tekur reglulega stöðuna á hjartslættinum og lætur þig vita ef púlsinn er hár á meðan þú ert í hvíld. Einnig hjálpar hann við að sýna hversu vel þú tekur á því á æfingum.

DRAGÐU ANDANN

Þetta úr bíður uppá nokkrar öndunaræfingar. Þegar þú vilt slaka á, geturðu byrjað öndunaræfingu, og úrið skráir niður stress og öndun til að hjálpa þér að ná betri áttum á hvernig þú ert að anda.

FORHLAÐNAR ÆFINGAR

Í úrinu eru forhlaðnar æfingar fyrir cardio, lyftingar og yoga. Það eina sem þú þarft að gera er að hreyfa þig. Hægt er að sækja fleiri æfingar í Garmin Connect.

ÍÞRÓTTAPRÓGRÖMM

Fleiri en 20 forhlaðin íþróttaprógrömm eru í úrinu, bæði innan og utan dyra.

GARMIN COACH

Hægt er að sækja æfingar frá sérfræðingum til að hjálpa þér að ná þínum markmiðum. Æfingarnar sendast beint í úrið frá Garmin Connect appinu.

HANNAÐU ÆFINGAR

Búðu til þínar eigin æfingar í Garmin Connect og sendu þær í úrið.

DAGLEG HREYFING

Venu Sq fylgist með daglegri hreyfingu eins og skrefafjölda, karloríubrennslu, æfingamínútum og fleiru.

SNJALLTILKYNNINGAR

Fáðu tilkynningar um tölvupóst, smáskilaboð, símtöl og margt fleira í úrið þegar það er tengt við snjallsíma.

TÓNLIST

Tengdu tónlistarveitur eins og Spotify við úrið. Geymdu lögin í úrinu og tengdu við bluetooth heyrnatól (einungis í music útgáfu).

ÖRYGGIÐ Í FYRIRRÚMI

Ef þú finnur fyrir óöryggi eða úrið skynjar að þú lendir í slysi getur þú nýt þér assistance and incident detection sem sendir staðsetningu þína til fyrirfram ákveðinna tengiliða – virkar einungis með æfingum sem nota GPS.

GARMIN PAY™ SNERTILAUSAR GREIÐSLUR

Notaðu snertulausan greiðslumöguleika úrsins til þess að versla á hlaupum, verslun eða hvar sem er.

CONNECT IQ™ BÚÐIN

Hægt er að ná í sérsniðin útlit fyrir úrið, data glugga, smáforrit of fleira í Connect IQ Store.

RAFHLÖÐUENDING

Allt að 6 dagar sem snjallúr og allt að 14 klst í GPS ham.

VATNSHELDNI

Allt að 5 ATM (50 metrar) – má fara með í sund, sturtu og gufu/sánu.