Zero 8 rafhlaupahjól
89.990 kr.
- Zero 8 er búið 350W rafmótor og 10,4Ah rafhlöðu sem veitir hámarksdrægni allt að 30 km Dekk að framan er loftfyllt 8,5″ að stærð en að aftan er gegnheilt 8″ dekk. ZERO 8 er með tvöfalda vökvafjöðrun að aftan, það er búið baklýstum LCD skjá með áfastri inngjöf og usb tengi, sem gerir þér kleift að stinga símanum í hleðslu þegar farið er á milli staða. Zero 8 er gefið upp fyrir allt að 100 kg. manneskju. Zero 8 er rafhlaupahjól sem hentar mjög vel í bæjarsnattið, auðvelt er að leggja það saman og bera eins og tösku inn í næstu byggingu eða strætó. Það fer lítið fyrir því samanbrotnu og er hægt að koma því með lítilli fyrirhöfn á bak við hurð eða undir eða borð. Þá fer lítið fyrir því í hvaða farangursrými sem er en það er 17 kg. Stýrið er hæðarstillanlegt og einnig er hægt að leggja handföngin niður með stýrisstammanum til þess að það fari enn minna fyrir því í flutningi eða geymslu. Stigbrettið, sem er 49 x 21 sm, er strerklegt álbox sem hefur að geyma rafhlöðuna og rafstýringuna. Þá eru á því tvö LED-ljós sem lýsa fram á við og tvö aftur LED-ljós sem eru einnig bremsuljós og blikka þegar hemlað er. Zero 8 er skemmtilegt rafhlaupahjól sem hefur hlotið frábærar viðtökur á Íslandi.
- Lýsing
Lýsing
![]() |
Drægni: 30 km eftir aðstæðum |
![]() |
Mótor: 350W 36V 10.5ah |
![]() |
Þyngd: 17 kg |
![]() |
Hámarkshraði: 25 km/klst |
![]() |
Rafhlaða: 36V 10 AmpH / lithium-ion |
![]() |
Gírar: 3 gíra |
![]() |
Bremsur: Bremsuborðar á aftur- og framhjóli |
![]() |
Dekk: 8,5″ framdekk + 8,0″ afturdekk |
![]() |
Mælaborð/skjár: Baklýstur LCD skjár |
![]() |
Hámarksþyngd: 100 kg |